Heinaberg 20, 815 Þorlákshöfn
69.700.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
5 herb.
174 m2
69.700.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
1968
Brunabótamat
75.350.000
Fasteignamat
61.900.000

VALBORG fasteignasla kynnir í einkasölu Heinaberg 20, 815 Þorlákshöfn.
Um er að ræða fimm herbergja einbýlishús á hornlóð, eignin er samtals 174,6 m2 að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Húsið, skráð 133,8 m2, telur forstofu, gang, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, eldhúsi og borðkrók, borðstofu, stofu, þvottahús, geymslu/tengirými og 40,8 m2 bílskúr. Steypt bílaplan og stór lóð.
Leikskólinn Bergheimar er í göngufæri, sem og Grunnskóli Þorlákshafnar og sundlaug Þorlákshafnar. Einnig er stutt í ýmsa aðra þjónustu bæjarins.

Sjá staðsetningu hér.

Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected]
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].


Nánari lýsing eignar: 
Forstofa með fataskáp, flísar á gólfi.
Svefnherbergisgangur tengir svefnherbergi hússins, baðherbergi, eldhús og stofu.
Hjónabergi með góðum fataskápum og glugga að bakgarð hússins.
Svefnherbergi I með fataskáp og glugga að bakgarði hússins. 
Svefnherbergi II með fataskáp og glugga til austurs. 
Svefnherbergi III er inn af borðstofu og getur nýst sem fjórða svefnherbergið, skrifstofa eða sjónvarpsrými. Enginn skápur en auðvelt að koma honum fyrir.
Baðherbergi með wc, innrétting með handlaug og baðkar með sturtuaðstöðu. Opnanlegur gluggi til norðurs. Flísar á gólfi og veggjum.
Borðkrókur við hinn enda gangsins (skáli á teikningu) með möguleika á að opna inn í eldhús en í dag er hálfopinn veggur á milli.
Eldhús með miklu skápa- og vinnuplássi. Tengi fyrir uppþvottavél, helluborð og vifta, bökunarofn í vinnuhæð, útsýni út á götu um glugga yfir vaski.
Þvottahús og geymsla er inn af eldhúsi. Gott vinnupláss í björtu rými, góð innrétting, skolvaskur og hurð út í garð. Gluggar á tvo vegu.
Stofa er í viðbyggingu en húsið var stækkað í bakgarð til vesturs og því er núna stofa inn af borðstofu. Útgengi úr stofu í bakgarð.
Bílskúrinn er upphitaður, rafmagnsopnari á innkeyrsluhurð. Stærð 40,6 m2
Gott steypt bílaplan fyrir framan bílskúr, steypt gönguleið að útidyrahurð og við þvottahúshurð.
Fánatsöng uppsett í garði. Lagnir fyrir heitan pott eru í bakgarði.
Garðurinn er stór en einfaldur. Nýbúið er að þökuleggja stórt svæði í bakgarði hússins. 

Gólfefni hússins:
Flísar á anddyri, baðbergi, eldhúsi og þvottahúsi.
Parket á herbergjum, gangi, skála, borðstofu og stofu.

Nýlegar endurbætur fela meðal annars í sér:
- Garður hefur verið einfaldaður og tyrfður upp á nýtt.
- Ný útidyrahurð ásamt gluggastykki.
- Ný hurð og gluggastykki á þvottahúsi.
- Nýir gluggar á austurhlið hússins (framverðu).
- Húsið sprunguviðgert og málað.
- Þak hússins málað.


Byggingarár eignarinnar er 1968.
Fastanúmer eignar er 221-2362.


Aðrar eignir sem við seljum má sjá hér.

Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, lgf, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected].
Elínborg María Ólafsdóttir, lgf, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.