Nóatún 17, 2. hæð, 105 Reykjavík

Hafðu samband

Skilaboð hafa verið send.

Valborg fasteignasala

Markmið okkar er að veita öllum viðskiptavinum okkar, jafnt kaupendum og seljendum, faglega ráðgjöf og góða þjónustu. Það skiptir okkur máli að viðskiptavinurinn fari ánægður frá okkur. Hikaðu ekki við að hafa samband. Við tökum vel á móti þér.

Stofnendur Valborgar fasteignasölu eru Elvar Guðjónsson, Jónas Ólafsson og María Guðrún Sigurðardóttir, viðskiptafræðingar frá Háskóla Íslands. Þórður Heimir Sveinsson, héraðsdómslögmaður og löggiltur fasteignasali, starfar við frágang skjala og veitir lögfræðilega ráðgjöf. Öll hafa þau áratugareynslu úr íslensku viðskiptalífi.

Fasteignasalar á Valborg starfa á grundvelli löggildingar samkvæmt lögum um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015 sbr. lög 131/2015. Aðstoðarmenn fasteignasala starfa á grundvelli undanþáguákvæða sömu laga um starfsheimildir nemenda sbr. 8.gr. a. og ákvæða II og IV til bráðabirgða. Við sölu eigna skipta fasteignasalar og aðstoðamenn fasteignasala með sér verkum í samræmi við ákvæði laga. Aðstoðarmenn fasteignasala aðstoða við úttekt eigna og gerð söluyfirlits, aðstoða við gerð kauptilboðs, sýna fasteign og aðstoða við gerð fjárhagslegs uppgjörs. Aðstoðarmaður fasteignasala starfar á ábyrgð löggilts fasteignasala.