Um okkur

Markmið okkar er að veita öllum viðskiptavinum okkar, jafnt kaupendum og seljendum, faglega ráðgjöf og góða þjónustu. Það skiptir okkur máli að viðskiptavinurinn fari ánægður frá okkur. Hikaðu ekki við að hafa samband. Við tökum vel á móti þér.

Stofnendur Valborgar fasteignasölu eru löggiltu fasteignasalarnir Elvar Guðjónsson, Jónas Ólafsson og María Guðrún Sigurðardóttir, viðskiptafræðingar frá Háskóla Íslands. Borga Harðardóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, starfar við frágang skjala og veitir lögfræðilega ráðgjöf. Öll hafa þau áratugareynslu úr íslensku viðskiptalífi.

Árið 2022 opnaði Valborg útibú í Hveragerði og þar starfa í dag meðeigendurnir og löggiltu fasteignasalarnir Gunnar Biering Agnarsson og Elínborg María Ólafsdóttir.

Fasteignasalar á Valborg starfa á grundvelli löggildingar samkvæmt lögum um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015 sbr. lög 131/2015. Aðstoðarmenn fasteignasala starfa á grundvelli undanþáguákvæða sömu laga um starfsheimildir nemenda sbr. 8.gr. a. og ákvæða II og IV til bráðabirgða. Við sölu eigna skipta fasteignasalar og aðstoðamenn fasteignasala með sér verkum í samræmi við ákvæði laga. Aðstoðarmenn fasteignasala aðstoða við úttekt eigna og gerð söluyfirlits, aðstoða við gerð kauptilboðs, sýna fasteign og aðstoða við gerð fjárhagslegs uppgjörs. Aðstoðarmaður fasteignasala starfar á ábyrgð löggilts fasteignasala.

Valborg starfar eftir peningaþvættisstefnu fasteignasölunnar skv. lögum nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og skv. reglugerð nr. 745/2019 um áreiðanleikakönnun vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Starfsmenn

Aðalsteinn Steinþórsson
Viðskiptafræðingur – löggiltur fasteignasali
Símanúmer 896 5865 [email protected]
Borga Harðardóttir
Lögfræðingur | MPM | Löggiltur fasteignasali
Símanúmer 821 2412 [email protected]
Elínborg María Ólafsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Símanúmer 861 6866 [email protected]
Elvar Guðjónsson
Viðskiptafræðingur | Löggiltur fasteignasali
Símanúmer 895 4000 [email protected]
Eva Björg Árnadóttir
Löggiltur fasteignasali
Símanúmer 419 7900 [email protected]
Gunnar Biering Agnarsson
Löggiltur fasteignasali
Símanúmer 823 3300 [email protected]
Jónas Ólafsson
Viðskiptafræðingur | Löggiltur fasteignasali
Símanúmer 824 4320 [email protected]
Kristinn Sævar Magnússon
Löggiltur fasteignasali
Símanúmer 845 5433 [email protected]
María G. Sigurðardóttir
Viðskiptafræðingur/MSc | Löggiltur fasteignasali
Símanúmer 820 1780 [email protected]