Heiðarbrún 49, 810 Hveragerði
74.800.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
161 m2
74.800.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1981
Brunabótamat
71.700.000
Fasteignamat
71.550.000

VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu Heiðarbrún 49, 810 Hveragerði..
Um er að ræða endaíbúð með bílskúr í þriggja íbúða raðhúsi.
Eignin er samtals 161,1 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Íbúðin er 112,7 m² að stærð og bílskúrinn 48,4 m².
Íbúðin telur forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús, stofu og innbyggðan bílskúr.
Stór afgirt timburverönd er fyrir framan hús, gengið út frá stofu. 
Eignin hefur nýlega verið endurgerð, ný gólfefni, eldhús, baðherbergi og fleira.
Virkilega falleg eign innst í botnlanga. Stutt í leikskóla og fallegar gönguleiðir allt um kring.

Sjá staðsetningu hér:

Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, lgf, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].
Gunnar Biering Agnarsson, lgf, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected].


Lýsing eignar:
Forstofa
: Parket á gólfi, fatahengi.
Eldhús: Hvít innrétting með efri og neðri skápum. Bakarofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél, ísskápur, helluborð og svartur háfur.
Nýjir gluggar í vestur og austur.
Stofa/borðstofa: Upptekin loft, parket á gólfi. Frá stofu/borðstofu er útgengt á afgirta timburverönd með skjólvegg.
Frá timburverönd er hurð að bílskúr.
Hjónabergi: Rúmgott með góðum fataskáp, parket á gólfi. Gluggi snýr í suður.
Svefnherbergi I: Parket á gólfi, fataskápur. Gluggi snýr í suður.
Svefnherbergi II: Parket á gólfi. Gluggi snýr í vestur.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi, innrétting með handlaug og skúffum, upphengt wc og  "walk-in" sturta.
Þvottahús: Málað gólf, hillur og gert ráð fyrir þvottavél í vinnuhæð. Gluggi til vesturs og inngöngudyr.
Bílskúr: Er stór og snyrtilegur, tæplega 50m² með nýjum gluggum til suðurs. Ný innkeyrsluhurð og gönguhurð út í garð.

Nýlegar framkvæmdir að sögn seljanda:
Bílskúrsþak nýlega yfirfarið.
Ný bílskúrshurð.
Nýr þakkantur.
Nýir gluggar í eldhúsi og bílskúr.
Nýtt gler á nokkrum stöðum.
Nýir ofnar.
Ný gólfefni.
Nýjar innihurðar.
Ný eldhúsinnrétting
Nýtt baðherbergi.
Eignin er öll nýmáluð að innan og utan.

Gólfefni:
Harðparket og flísar.

Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, lgf, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].
Gunnar Biering Agnarsson, lgf, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected].

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.