Kambahraun 12, 810 Hveragerði
79.700.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
4 herb.
168 m2
79.700.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1973
Brunabótamat
71.850.000
Fasteignamat
76.600.000

VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu Kambahraun 12, 810 Hveragerði.
Töluvert endurnýjað fjögurra herbergja einbýli á frábærum stað.
Eignin er samtals 168 m² m2 að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands. 
Húsið, 120 m2, telur forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymslu.
Tvöfaldur bílskúr, 48 m2, með hellulögðu bílaplani.
Húsið er byggt árið 1973, mikið endurnýjað á liðnum árum.
Stutt er í óspilta náttúru allt um kring með fallegum göngu- og hjólaleiðum.
Fasteignamat eignarinnar er kr. 76.600.000,-


Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected]
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].

Sjá staðsetningu hér:

Nánari lýsing:
Forstofa með fataskáp og handklæðaofni.
Svefnherbergisgangur sem tengir vistarverur hússins.
Stofa/borðstofa eru í sama rými, upptekið loft og milliveggur sem skilur að rýmin. Gluggar til suðurs og vestur en í þeim er sólgler.
Eldhús er rúmgott og með nýrri IKEA innréttingu. Mikið skápapláss og pláss fyrir stórt borð.
Svefnherbergi I og II eru skápalaus.
Hjónaherbergi með miklum fataskápum.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, góð innrétting með tveim vöskum, vegghengt wc, rúmgóð sturta. Baðherbergið er nýlega endurbyggt og stækkað. Var þá sett útidyrahurð er liggur út í bakgarð.
Þvottahús með skápum, gert ráð fyrir þvottvél og þurrkara, vaskaborð. Útgengt í bakgarð. 
Bílskúr er tvöfaldur, tvennar innkeyrsludyr og rafmagnshurðaopnari á annarri. Inngönguhurð á hlið skúrsins.

Eignin hefur verið að töluvert endurnýjuð, meðal annars:
Ný eldhúsinnrétting 2021.
Baðherbergi er endurnýjað 2020 og stækkað. Innbyggð tæki frá Ísleifi Jóns, flísar frá Harðviðarvali. Gólfhita komið fyrir. Glerveggur með kísilvörn. Ný útihurð á baðherbergi út í bakgarð.
Neysluvatn endurnýjað.
Skólpið myndað 2017. Skólp endurnýjað að hluta (plast að baðherbergi) og stungið inn í eldri lögn í átt að eldhúsi.
Nýjar innihurðar settar 2020.
Nýir ofnakranar.
Tölvutengingar í öllum herbergjum.
Nýlegar hefur verið skiptu um gler í flestum gluggum hússins sem og bílskúr. 
Nýtt járn og pappi á þaki bílskúrs 2018.
Nýlegur ofn í bílskúr.


Einföld lóð, hellulagt fyrir framan bílskúr og að inngangi hússins. 
Eignin er staðsett í efti hluta bæjarins við botnlangagötu.
Stutt er í leiksvæði og fallega náttúru við Hamarinn.
Þar eru göngu/hjólaleiðir, útistofa grunnskólans og skógrækt Hveragerðis.

Aðrar eignir sem við seljum má sjá hér.

Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, lgf, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected]
Elínborg María Ólafsdóttir, lgf, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.