Heiðarbrún 64 með auka íbúð , 810 Hveragerði
99.700.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
7 herb.
171 m2
99.700.000
Stofur
2
Svefnherbergi
6
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1980
Brunabótamat
80.500.000
Fasteignamat
80.900.000

VALBORG kynnir í einkasölu einbýlishúsið Heiðarbrún 64 11, 810 Heragerði.
Fjögurra herbergja einbýlishús ásamt tvöföldum bílskúr.
Falleg auka íbúð með eldhúsi, salerni og einu svefnherbergi er í bílskúr.
Eignin er samtals 171,6 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Húsið sjálft er 132,0 m² og telur forstofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, stofu/borðstofu, baðherbergi og Þvottahús/geymsla.
Bílskúrinn er tvöfaldur, skráður 39,6 m² að stærð en þar er fallega innréttuð íbúð.


Sjá staðsetningu hér:

Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected]
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].


Lýsing eignar:
Anddyri er flísalagt, þar er fataskápur.
Þvottahús er með sér inngangi á hlið hússins. Þar er flísalgt og innrétting fyrir þvottavél & þurkara.
Stofa/borðstofa er björt og falleg með útgengt á hellulagða verönd. 
Eldhús með ljósri innréttingu, efri og neðri skápar og mikið skúffupláss. Frá eldhúsi er innangengt í þvottahús.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, innrétting með handlaug, veggskápur, vegghengt wc, handklæðaofn og "walk-in" sturta.
Hjónaherbergi með góðum fataskáp, parket á gólfi.
Barnaherbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfi.
Sérstæður tvöfaldur 39,6 m² bílskúr byggður árið 1987. 
Þar er núna fallega innréttuð íbúð með eldhúsi/stofu, baðherbergi og einu svefnherbergi.
Geymsluskúr á steyptri plötu er bakvið bílskúrinn.
Nýjir gluggar eru í eigninni sem og ný útidyrahurð.

Gólfefni hússins eru flæðandi harðparket.
Flísar eru á anddyri og baðherbergjum.
Loft eru panilklædd.

Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, lgf, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected]
Elínborg María Ólafsdóttir, lgf, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.