Aldinmörk 4, 810 Hveragerði
54.700.000 Kr.
Fjölbýli/ Tvíbýli
4 herb.
75 m2
54.700.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2019
Brunabótamat
41.600.000
Fasteignamat
48.500.000

VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu fallega íbúð í tvíbýli, við Aldinmörk 4, 810 Hveragerði.
Íbúðin er nýleg, fjögurra herbergja á  jarðhæð með sérinngangi.
Eignin telur forstofu, alrými með eldhús og stofu, þrjú svefnherberg og baðherbergi.
Útgengt er frá stofu á skjólgóða timburverönd er snýr til suðurs.

Eignin er samtals 75m² m2 að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Eignin er staðsett í hjarta Hveragerðis. 

Nánari lýsing:

Anddyri með flísum á gólfi og tvöföldum fataskáp.
Alrými með stofu og eldhúsi. Útgengt er frá stofu út á skjólgóða timburverönd er snýr til suðurs.
Eldhús er með sérsmíðaðri innréttingu. Spanhelluborð, vifta og bakarofn í vinnuhæð frá AEG. Innbyggður ísskápur með frysti og innbyggð uppþvottavél.
Baðherbergi er flísalagt. Sturta er flísalögð, vegghengt salerni, vaskaskápur og speglaskápur.
Á baðherberginu er gert ráð fyrir þvottavél og þurkara.
Hjónaherbergi er með fjórföldum fataskáp.
Svefnherbergi I er með tvöföldum fataskáp.
Svefnherbergi II er með einföldum fataskáp.
Gólfefni íbúðar er parket og flísar.
Innan íbúðar er tvöfaldur geymsluskápur með extra dýpt.
Sérinngangur er í íbúðina.

Eignin er á svokölluðum Edenreit, miðsvæðis í Hveragerði. 
Lóð og bílstæði frágengin og snyrtileg.
Stutt í skóla, verslun og þjónustu.
Miðsvæðis er leiksvæði og sælureitur með litlum gróðurhúsum sem íbúar geta fengið að njóta góðs af.

Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected]
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].


Aðrar eignir sem við seljum má sjá hér.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til
seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta
fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum
kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.