Aldinmörk 8, 810 Hveragerði
54.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
79 m2
54.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2019
Brunabótamat
45.750.000
Fasteignamat
49.400.000

EIGNIN ER SELD MEÐ HEFÐBUNDNUM FYRIRVARA
VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu fallega íbúð á annari hæð, við Aldinmörk 8, 810 Hveragerði.
Íbúðin er nýleg, þriggja herbergja á annari hæð með sérinngangi.
Eignin telur forstofu, alrými með eldhúsi og stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymsla.
Sér geymsla er staðsett á jarðhæð. Lyfta er í sameign.
Eignin er samtals 79,9m² m2 að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.


Sjá staðsetningu hér:

Nánari lýsing:
Anddyri með flísum á gólfi og fataskáp.
Alrými með stofu og eldhúsi. Útgengt er frá stofu út á hornsvalir með góðu útsýni.
Eldhús er með sérsmíðaðri innréttingu. Spanhelluborð, vifta og bakarofn í vinnuhæð frá AEG. Gert er ráð fyrir einföldum ísskáp í innréttingu, innbyggð uppþvottavél.
Baðherbergi er flísalagt. Sturta er flísalögð, vegghengt salerni, vaskaskápur og speglaskápur.
Á baðherberginu er gert ráð fyrir þvottavél og þurkara.
Svefnherbergi I er með fjórföldum fataskáp.
Svefnherbergi II er með tvöföldum fataskáp.
Gólfefni íbúðar er parket og flísar.
Sérinngangur er í íbúðina.

Eignin er á svokölluðum Edenreit, miðsvæðis í Hveragerði. 
Lóð og bílstæði frágengin og snyrtileg.
Stutt í skóla, verslun og þjónustu.
Miðsvæðis er leiksvæði og sælureitur með litlum gróðurhúsum sem íbúar geta fengið að njóta góðs af.

Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected]
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].

Aðrar eignir sem við seljum má sjá hér.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.