Réttarheiði 14, 810 Hveragerði
79.700.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
155 m2
79.700.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2004
Brunabótamat
68.750.000
Fasteignamat
74.500.000

VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu fallega endaíbúð í raðhúsi, við Réttarheiði 14 í Hveragerði.
Eignin telur forstofu, alrými með eldhúsi og stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr.
Einnig er kjallari undir húsinu sem í dag er góð geymsla.
Hellulagt bílaplan og snyrtileg aðkoma að húsinu.
Útgengt er frá borðstofu á skjólgóða timburverönd er snýr til suðurs.
Þar er heitur pottur.
Eignin er samtals 155m²  að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Íbúðin er 128,6m² að stærð og bílskúrinn er 26,7m²


Sjá staðsetningu hér;

Nánari lýsing:
Anddyri með flísum á gólfi og tvöföldum fataskáp.
Alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Útgengt er frá stofu út á skjólgóða timburverönd, með heitum potti er snýr til suðurs.
Eldhús er með eikar innréttingu. Þar eru efri og neðri skápar og gott vinnupláss.
Keramikhelluborð, vifta og bakarofn í vinnuhæð. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu.
Baðherbergi er flísalagt. Stór sturtu/baðklefi, upphengt wc, innrétting með handlaug, skúffu og skápaeiningu. 
Hjónaherbergi er með sexföldum fataskáp.
Svefnherbergi I er með tvöföldum fataskáp.
Svefnherbergi II er með tvöföldum fataskáp.
Bílskúr er flísalagður. Vegghillur og geymsluloft yfir hluta bílskúrs.
Innst í bílskúr er þvottahús með útgengt á baklóð.
Þvottahús er flísalagt, gert er ráð fyrir þvottavél og þurkara. Borðplata yfir vélum og útgengt á baklóð.
Gólfefni íbúðar er parket og flísar.

Aðgengi að kjallara er á hlið hússins, steyptar tröppur eru niður að hurð. Góð geymsla.

Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected]


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.