Drekahraun 7, 810 Hveragerði
Tilboð
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
4 herb.
178 m2
Tilboð
Stofur
2
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2021
Brunabótamat
95.900.000
Fasteignamat
90.650.000

VALBORG kynnir í einkasölu Drekahraun 7, 810 Hveragerði.
Fallegt einbýlishús í Kambalandi, 178,8 að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.

Íbúðin er 138,4 fm og bílskúr 40,4 fm.
Parket á gólfum en votrými eru flísalögð.
Gólfhiti er í eigninni.
Lóðin er 690m2 að stærð og lagnir fyrir heitann pott eru komnar.
Vel skipulagt og viðhaldslítið einbýlishús í ört stækkandi hverfi í Hveragerði.


Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofa, sjónvarpshol, þvottahús, baðherbergi og þrjú svefnherbergi.
Komið er inn í flísalagða forstofu. Þar er stór fataskápur.
Frá forstofu er gengið inn í miðrýmið með eldhúsi og stofu á vinsti hönd.
Þar er aðgengi út í garð. Búið er að leggja lagnir fyrir heitann pott á lóðinni.
Eldhúsið er hvítt með góðu skápaplássi, innbyggðum ísskáp & uppþvottavél.
Stór eyja með helluborði frá Simens.
Innréttingin er frá Ikea og ljós borðplata frá Fantófell.
Úr miðrými er farið inn í sjónvarpshol, baðherbergi og svefnherbergi.
Baðherbergi er flísalagt með ljósgráum flísum. Þar er svört innrétting og "walk in" sturta.
Innrétting á baði er frá Innréttingar & tæki, blöndunartæki frá Tengi.
Svefnherbergin eru þrjú.
Hjónaherbergi er með tvöföldum, opnum fataskáp.
Barnaherbergin eru tvö, annað þeirra er með fataskáp.
Rúmgott þvottahús með stórri innréttingu frá Ikea.
Þar er pláss fyrir þvottavél & þurkara í innréttingunni. Einnig er þar gott borðpláss og skolvaskur.
Útgengt er frá þvottahúsi út í garð.
Frá þvotthúsi er einnig innangengt í bílskúrinn.
Bílskúrinn
er með steyptu gólfi og rafdrifnum hurðaopnara.
Bílskúrinn er breiður svo hægt er með góðu móti að athafna sig í honum þó bíll sé inni.
Frá bílskúr er innangengt í íbúðina.
Einnig er gönguhurð á hlið bílskúrsins.

Allar innihurðir eru frá Byko, hvítar á lit, sem og gólflistar. Gluggar eru svartir.
Gólfefni húsins er parket en flísalagt er á votrýmum, forstofu, baðherbergi og þvottahúsi.
Öll gólfefni eru frá Álfaborg.
Gólfhiti er í allri íbúðinni.

Hér er um að ræða fallega & rúmgóða eign á góðum stað í tengslum við náttúruna.
Allt um kring eru góðar gönguleiðir og óspillt náttúran.

Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected]
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].


Sjá staðsetningu hér:

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til
seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta
fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum
kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.