VALBORG fasteignasla kynnir í einkasölu Akurhóla 4, 800 Selfossi.
Um er að ræða endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi, samtals 77,4 m2 að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.Íbúðin, sem er skráð 74,7 m2, telur forstofu, alrými, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús og stofu ásamt 2,7 m2 geymslu og hjóla- og vagnageymslu.
Pallur fyrir sunnan hús, steypt gangstétt fyrir framan hús.
Leikskólinn Jötunheimar er í göngufæri sem og Sunnulækjarskóli. Stutt í aðra leik- og grunnskóla líka.
Fasteignamat næsta árs verður kr. 44.450.000,-
Sjá staðsetningu hér.
Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected].
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].Lýsing eignar:
Forstofa með fataskáp. Flísar á gólfi.
Alrými með parketi á gólfi.
Hjónabergi á hægri hönd, góðir fataskápar, parket á gólf og gluggi til norðurs.
Baðherbergi með baðkari, innréttingu með handlaug, upphengt wc.
Þvottahús er inn af baðherbergi. Tengi fyrir þvottavél.
Eldhús með góðri innréttingu, ofn í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél, helluborð í eldunareyju og háfur yfir. Gluggar til austurs.
Stofa með útgengi á sérafnotaflöt sem er afgirtur. Sólríkt enda snýr pallurinn til suðurs.
Barnaherbergi er við hlið stofu með glugga til suðurs er merkt sem geymsla á teikningu.
Geymsla merkt 0107 á teikningu (merkt 0101 á hurð) fylgir einnig en hún er staðsett inn af hjóla- og vagnageymslu á jarðhæð hússins.
Gólfefni:
Flísar á forstofu, baðherbergi og þvottahúsi.
Parket á herbergjum, alrými, eldhúsi og stofu.
Byggingarár eignarinnar er 2017.
Fastanúmer eignar er
234-0423.
Aðrar eignir sem við seljum má sjá
hér.
Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, lgf, í síma 823-3300, tölvupóstur
[email protected].
Elínborg María Ólafsdóttir, lgf, í síma 861-6866, tölvupóstur
[email protected].
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.