Hjallabrún 17, 810 Hveragerði
85.900.000 Kr.
Parhús/ Parhús á einni hæð
4 herb.
141 m2
85.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2018
Brunabótamat
71.850.000
Fasteignamat
75.150.000

VALBORG fasteignasla kynnir Hjallabrún 17, 810 Hveragerði.
Um er að ræða parhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr.
Eignin er samtals 141,1 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Íbúðin er 110,7 m² og bílskúrinn 30,4 m²
Íbúðin telur forstofu, alrými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi/þvottahús, eldhús og stofu ásamt bílskúr sem innangengt er í.
Öll loft í eigninni eru upptekin og því mjög mikil og góð lofthæð.
Gott loftræstikerfi er í allri eigninni.
Golfhiti er í öllum rýmum nema bílskúr.
Bílaplan er hellulagt og lóð frágengin.
Snjóbræðsla er í bílaplani.
Í garðinum er pallur sem snýr í suð-austur.
Leikskólinn Undraland er í göngufæri sem og fallegar gönguleiðir við Reykjafjall, Ölfusborgir, Varmá og fleira.


Sjá staðsetningu hér:

Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, lgf, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].

Gunnar Biering Agnarsson, lgf, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected].

Lýsing eignar:
Forstofa er með parketi, rúmgóðum fataskáp 2x 80 cm, með fataslám og hillum. Frá forstofu er innangengt í bílskúr.
Alrými er opið og bjart en þar er eldhús og stofa.
Eldhús hvít innrétting frá HTH með efri & neðri skápum, eldhúseyja með vinnuplássi og skúffueiningum Þá er tengi fyrir uppþvottavél, bakarofn í vinnuhæð og gott vinnupláss í eldhúsi. Gert er ráð fyrir tvöföldum ískáp. Borðplötur eru Granít steinn. 
Stofa/borðstofa frá stofu/borðstofu er eru útgengt á timburverönd. Upptekið loft.
Hjónabergi rúmgott með góðum Ikea fataskáp, parket á gólfi, upptekin loft.
Svefnherbergi I og II tvöfaldur fataskápur í báðum herbergjum, parket á gólf og upptekin loft.
Baðherbergi er flísalagt, upphengt wc, "walk-in" sturta, stórt frístandandi baðkar, skápur og innrétting með handlaug.
Granít borðplata á vaskinnréttingu.
Á baðherbergi er innrétting fyrir þvottavél og þurkara.
Bílskúr er 30,4m², snyrtilegur með epoxy á gólfi og milliloft yfir hluta. Góð vinnulýsing og rafmagnshurðaopnari.
Loftræstikerfi er í allri eigninni. Það tryggir góð loftgæði þó svo að allir gluggar séu lokaðir.
Húsið er klætt með lituðu báruáli og ólitað aluzink er á þaki.

Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, lgf, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].
Gunnar Biering Agnarsson, lgf, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected].

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.