Borgarhraun 14, 810 Hveragerði
79.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
4 herb.
158 m2
79.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1971
Brunabótamat
67.750.000
Fasteignamat
66.800.000

EIGNIN ER SELD!
VALBORG fasteignasala og ráðgjöf kynnir í einkasölu
einbýlishúsið Borgarhraun 14, 810 Hveragerði.
Fjögurra herbergja einbýlishús ásamt tvöföldum bílskúr við botnlanga á friðsælum og eftirsóttum stað.
Eignin er samtals 166,1 m2 að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Húsið sjálft er 113,4
m2 og telur forstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, stofu/borðstofu, baðherbergi, gestasnyrtingu og þvottahús/geymslu.
Bílskúrinn er tvöfaldur að breidd, skráður 45,0 m2 að stærð. Í honum eru núna tvö vinnuherbergi öðru megin og pláss fyrir bifreið hinumegin. Inngönguhurð er á norðurhlið bílskúrs.
Milli bílskúrs og hús er nýleg timburverönd sem nýtist vel á sólardögum. 
Þar er einnig nýlega búið að reisa veglegan vinnuskúr sem nýtist vel fyrir garðverkfærin og annað slíkt.
Þá er einnig stór afgirt timburverönd sunnan við húsið með aðgengi inn í stofu. Á veröndinni er heitur pottur.


Sjá staðsetningu hér:

Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected]
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].


Lýsing eignar:
Anddyri er flísalagt. Þar er fjórfaldur fataskápur. 
Gestasnyrting er við andyrið. Hún var nýlega gerð upp á snyrtilegan hátt. Þar er salerni og handlaug.
Eldhús er flísalagt. Þar er falleg, ljós innrétting, með efri og neðri skápum. Ljósakappi er á innréttingunni. Innréttingin er U-laga með nýrri borðplötu. Gott pláss fyrir eldhúsborð.
Stofa/borðstofa. Gluggar til suðurs og hurð út á afgirtan pall á suðurhlið stofunnar. Þar er heitur pottur og mjög sólríkt og skjólsælt.
Þvottahús/geymsla er inn af eldhúsi. Þvottahús er flísalagt. Þar er útidyrahurð er snýr í norður. Þar er pláss fyrir þvottavél og þurrkara, borðplata með skolvask og hillur.
Baðherbergi er allt nýlega endurgert. Það er flísalagt í hólf og gólf, innrétting með handlaug, handklæðaofn, vegghengt wc og "walk-in" sturta.
Svefnherbergi I án fataskáps og glugga til suðurs.
Svefnherbergi II án fataskáps og með glugga til suðurs.
Hjónaherbergi með góðum fataskáp og glugga til vesturs.
Sérstæður tvöfaldur 45,2 m2 bílskúr. Tvær innkeyrsludyr með rafmagnsopnara. Í dag eru tvö vinnuherbergi í öðrum helmingnum og pláss fyrir bifreið í hinum.
Bílskúrinn er allur hin snyrtilegasti. Loftið klætt með parketi, hillur, borð og vaskur og gólf málað. Möguleiki á að gera auka íbúð þar.
Hellulögð bílastæði við innkeyrslu. Hellulagt að húsi og meðfram húsi. 

Gólfefni hússins eru flísar og parket.

Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, lgf, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected].
Elínborg María Ólafsdóttir, lgf, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].


Aðrar eignir sem við seljum má sjá hér.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum
kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.