Valborg fasteignasla kynnir í einkasölu Lóuhlíð 9, 240 Grindavík.
Um er að ræða raðhús í byggingu með þrem íbúðum, hver og ein með innbyggðum bílskúr, teiknað af Valgeiri Berg Steindórssyni.
Stærð íbúðar með bílskúr er 163,7 m2 samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Gert er ráð fyrir tveim bílastæðum við hverja íbúð.
Möguleiki er að kaupa hús 5 og 7 líka á því stigi sem þau eru núna.Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected].
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].
Sjá staðsetningu hér:Skipting eignar er eftirfarandi:
Forstofa, stofa, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, þvottahús, geymsla og bílskúr.
Svefnherbergin eru frá 10,5 - 20,8 m2 að stærð.
Bílskúr er teiknaður 25,4 m2 að stærð, en inn af honum eru aukalega þvottahús og geymsla. Hátt er til lofts í skúrnum svo auðvelt er að útbúa milliloft. Heildarstærð eignar er 163,7 m2.
Úrdráttur úr byggingarlýsingu:
Húsið er steinsteypt raðhús á einni hæð. Í hverju húsi eru þrjú svefnherbergi auk stofu, eldhús, eitt baðherbergi, þvottahús, geymsla og bílageymsla. Hver lóð er með tveimur bílastæðum og bakgarði til austurs. Gert er ráð fyrir hellulagðri innkeyrslu og gagnstétt sem og palli bakatil. Húsið er hannað m.t.t. algildrar hönnunar og uppfyllir ákvæði byggingarreglugerðar þaðr að lútandi. Aðkoma og bílastæði verða vestan megin við raðhúsið. Algild hönnun: Hindrunarlaust aðgengi skal vera frá keyrslusvæði og upp á gangstéttir í allar áttir sem hreyfihamlaður einstaklingur þarf að komast. Sama á við tengingar inn á lóð. Þak er mænisþak, byggt upp af stálbitum og einangrað verður milli sperra með þakull. Gluggar eru timbur/ál, settir í eftirá.
Gólfhiti er ísteyptur í plötu. Húsið verður afhent með ísettum gluggum og hurðum af vandaðri gerð, að bílskúrshurðinni frátalinni. Þak klætt, lóð grófjöfnuð og frárennslis- og regnvatnslagnir tengdar við fráveitu bæjarins. Auglýst verð miðast við þennan frágang. Einnig er að kaupa húsið eins og það er á myndum í auglýsingunni ásamt hurðum og gluggum hússins að bílskúrshurð frátalinni.
Teikningar:
ÚtlitAfstaða og skýringar (byggingarlýsing)
SkráningartaflaGrunnmyndSamkvæmt árlegum könnunum Gallup á ánægju íbúa með þjónustu sveitarfélaga er Grindavík í fyrsta sæti.
Laus leikskólapláss voru í Grindavík síðastliðiðinn vetur og hófust framkvæmdir í fyrra við að byggingu nýs leikskóla til að mæta íbúafjölgun.
Atvinnuástand í Grindavík er með því besta á landinu, atvinnutekjur á íbúa yfir landsmeðaltali og útsvarsprósenta í Grindavík (14,4%) er með því lægsta á suðvesturhorni landsins.
Fjárhagsstaða Grindavíkurbæjar er með því besta á Íslandi.
Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur
[email protected].
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur
[email protected].
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.