Hrísrimi 9, 112 Reykjavík (Grafarvogur)
Tilboð
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
112 m2
Tilboð
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1991
Brunabótamat
43.560.000
Fasteignamat
59.900.000

Valborg fasteignasala kynnir í einkasölu íbúð á annari hæð ásamt stæði í bílakjallara hússins við Hrísrima 9, 112 Reykjavík.
Eignin er samtals 112,2 m2 að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands, þar af er íbúðin sjálf 75,5 m2.
Íbúðin telur anddyri, eitt svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og geymslu.
Svalirnar eru yfirbyggðar og upphitaðar.
Eigninni fylgir sér stæði í bílakjallara hússins og sérgeymsla innaf stæðinu. Nýleg innkeyrsluhurð er í bílgeymslunni.
Á 1. hæð er sameiginleg hjólageymsla.


Eignin er er vel staðsett í barnvænu hverfi þar sem örstutt er í Rimaskóla, leikskólann Lyngheima og framhalsskóla.
Þá er einnig sundlaugin í Grafarvogi og íþróttarsvæði Fjölnis í göngufæri.
Sjá staðsetningu hér:

Upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected]
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].


Eignin skiptist í eftirfarandi:
Flísalagt anddyri og þar er gott skápapláss.
Eldhús með upprunalegri innréttingu, efri & neðri skápar með ágætu borðplássi.
Úr stofu er útgengt út á yfirbyggðar svalir en þær eru upphitað og með góðum opnanlegum gluggum.
Svefnherbergið er með innbyggðum fataskápum.
Geymslan er í dag nýtt sem barnaherbergi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf & gólf og þar er baðkar & hvít innrétting.

Gólfefni á íbúðinni eru parket og flísar.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.