Dalsbrún 6, 810 Hveragerði
65.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
3 herb.
99 m2
65.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2016
Brunabótamat
51.750.000
Fasteignamat
58.350.000

EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA
VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu Dalsbrún 6, 810 Hveragerði.
Fallega íbúð í fjögurra íbúða raðhúsi á frábærum stað.
Eignin er samtals 99,0 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands. 
Íbúðin telur forstofu, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymslu.
Garðurinn er mjög snyrtilega frágenginn, endurgerður af garðyrkjumanni og hannaður með það í huga að viðhald væri auðvelt.
Tré og plöntur sérvaldar og ræktunarkassar í vinnuhæð.
Snyrtilegur geymsluskúr er á baklóðinni.
Þá er einnig timburverönd með heitum potti.
Húsið er staðsteypt og steinað að utan. Á þaki er Aluzinik.
Steypt bílaplan að framan.

Húsið er byggt árið 2016.

Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].

Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected]

Sjá staðsetningu hér:

Lýsing eignar:
Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu. Þar er stór fataskápur.
Stofa: Eldhús og stofa eru saman í opnu og björtu rými. Frá stofu er útgengt á timburverönd með heitum potti.
Eldhús: Er opið inní stofu. Þar er hvít innrétting með efri og neðri skápum, bakarofn, uppþvottavél og ísskápur.
Þá er einnig eldhúseyja með góðu vinnuplássi og helluborði.
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf & gólf, upphengt wc, baðkar með sturtu, handklæðaofn og innrétting.
Geymsla/þvottahús: Pláss fyrir þvottavél og þurkara í vinnuhæð í góðri innréttingu. Lúga upp á geymsloft.
Svefnherbergin eru þrjú:
Svefnherbergi I er með suðurglugga er snýr út í garð. Þar er fataskápur.
Svefnherbergi I gengið er í herbergið frá forstofunni. Gluggi til norðurs. Skráð á teikningu sem geymsla.
Svefnherbergi II með þreföldum fataskáp og glugga til norðurs.
Innfeld lýsing er í loftaplötum hússins.
Gólfhiti er í allri eigninni.
Gólfefni íbúðar eru flísar og parket.

Staðsetning eignarinnar er mjög góð. Stutt er í verslun og þjónustu og leikskólinn Undraland er í göngufæri.
Eignin er staðsett austast í bænum. Varmáin rennur stutt frá og óspillt náttúran með fallegum göngu & hjólaleiðum allt um kring.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum
kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.



 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.